Mikið annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þegar allir fangaklefar á lögreglustöðinni á Hverfisgötu voru orðnir fullir varð að opna fyrir fangageymslur í Hafnarfirði.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en frá miðnætti voru skráðar 79 bókanir í dagbók lögreglu. Ekki kemur nánar fram hvaða mál komu upp.
Mikið annríki var í sjúkraflutningum í nótt að sögn varðstjóra en þeir voru yfir 40 talsins. Um margvísleg mál er að ræða.