Íslensk stjórnvöld hafa enga aðkomu að máli breska ríkisborgarans sem var meinað um inngöngu í Bandaríkin af bandarískum yfirvöldum fyrir helgi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Tilefni færslunnar er umræða um málið á Alþingi fyrr í dag.
Mohammed Juhel Miah er velskur kennari sem var leiddur út úr farþegaflugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku. Hann leitaði ekki til íslenskra stjórnvalda með málið enda heyrir það ekki undir íslensk stjórnvöld, segir jafnframt í færslu Sigríðar.
Hér er færsla Sigríðar í heild.