„Kosturinn er fyrst og fremst að þetta er inni í byggðinni á höfuðborgarsvæðinu. Það sem gerir þetta svæði áhugavert er meðal annars að við náum að tengja það við Borgarlínuna sem er hágæða almenningssamgöngukerfi. Borgarlínan ferðast um ás sem gengur frá vestri til austurs,“ segir Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís, um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og innviða fyrir allt að 12.600 manns við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða.
Sú iðnaðarstarfsemi sem er á svæðinu þarf að miklu leyti að víkja fyrir umræddri byggð. Búið er að ganga frá rammaskipulagi á svæðinu sem er leiðbeinandi fyrir deiliskipulagsvinnu sem getur farið af stað í framhaldinu.
Björn segir byggðina búa yfir fjölmörgum eiginleikum vistvænnar byggðar. „Það er jákvætt þegar hægt er að taka land sem búið er að nota áður undir athafna- og iðnaðarsvæði og umbreyta því í blandaða. Við erum ekki að brjóta óraskað land heldur breyta því sem fyrir er,“ segir Björn. Hann bendir einnig á nálægðina við Elliðaárvog sem góðan kost fyrir byggðina sem og nálægð við sjóinn fyrir þá sem það kjósa.
Gert er ráð fyrir blönduðu byggðamynstri á svæðinu. Byggðin verður að stærstum hluta lágreist og byggingar almennt á þremur til fimm hæðum en einnig er gert ráð fyrir nokkrum stærri kennileitum.
Á svæðinu er gert ráð fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði í blandaðri byggð, en svæðið er að stærstum hluta atvinnu- og athafnasvæði. Hins vegar þyrfti grófari og stórtækari iðnaður að víkja af svæðinu, að sögn Björns. „Ákveðnir hlutar svæðisins munu umbreytast á lengri tíma,“ segir Björn.
Spurður hvenær hægt væri að fara í framkvæmdir bendir hann á að það sé borgarinnar að svara fyrir það. „Það væri hægt að gera það fljótlega eftir að deiliskipulag væri samþykkt á fystu deiliskipulagsáföngum.“
Kynningarfundur um skipulag og uppbyggingu svæðisins verður haldinn á morgun í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur klukkan 17.