Lögreglan á Suðurlandi vekur á Facebook-síðu sinni athygli á því að víða í umdæminu er nú krap og slabb á vegum sem veldur mikilli hættu á að bílar „fljóti upp“ og missi veggrip.
„Þegar hafa orðið óhöpp af þessum sökum og hvetjum við vegfarendur til að aka í samræmi við aðstæður og stilla ökuhraða í hóf,“ segir í færslunni.