Mikill erill var í útköllum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem tengdust veðrinu þegar leið á nóttina. Fólki gekk illa að komast leiðar sinnar en einhverjir freistuðust samt til þess að reyna að aka heim í snjókomunni þrátt fyrir að hafa fengið sér í glas.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Fimm voru handteknir grunaður um ölvunarakstur eftir miðnætti og þurftu nokkrir að gista fangaklefa af þeim sökum.
Allir bílar lögreglu hafa verið uppteknir í verkefnum tengdum veðrinu en mörg slík útköll hafa verið í nótt og í morgun.