Svokölluð Jarðarstund fer fram í kvöld á milli klukkan 20.30 og 21.30. Markmið hennar er að hvetja íbúa heims til aðgerða gegn loftslagsbreytingum með því að slökkva ljósin í eina klukkustund og sýna með því fram á vitundarvakningu.
Þetta kemur fram á vefsíðu Orkubús Vestfjarða.
Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund skipulögðu Earth Hour í fyrsta sinn árið 2007 þegar ljósin voru slökkt í einni borg, Sydney í Ástralíu. Jarðarstundin á því 10 ára afmæli árið 2017. Í dag erum 7,000 borgir í 178 löndum sem hafa látið vita um þátttöku.
Flest sveitarfélög á Vestfjörðum ætla að taka þátt í Jarðarstund í ár en bæði einstaklingar, félög borgir og bæir geta tekið þátt og skráð viðburð á earthhour.org, að því er segir á síðunni.
„Allir eru hvattir til að taka þátt í Jarðarstundinni og kveikja ekki á rafmagnsljósum milli kl. 20:30 og 21:30 laugardaginn 25. mars. Njótum myrkurs, skoðum stjörnurnar og kveikjum svo á kertum og hugsum um hvað við getum lagt af mörkum til að bæta umhverfið og vinna gegn loftslagsbreytingum,“ segir á vefsíðunni.