Vegir eru greiðfærir að mestu um allt land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálka eða hálkublettir eru á flestum fjallvegum á Vestfjörðum.
Dynjandisheiði var opnuð í dag en þar er snjóþekja. Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Dettifossvegi og fyrir austan er hálka á Öxi en hálkublettir á Breiðdalsheiði.