Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru þá á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er eitthvað um hálku eða snjóþekja á fjallvegum en þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði og Trostansfirði.
Greiðfært er á Norðvesturlandi en á Norðausturlandi eru hálkublettir á Víkurskarði, Fljótsheiði og Mývatnsheiði.
Á Austurlandi er snjóþekja eða hálkublettir á fjallvegum en greiðfært á láglendi.
Greiðfært er með Suðausturströndinni.