Tvær ilkynningar bárust slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálf fjögur um eld í Hafnarfirði. Annars vegar í iðnaðarhúsnæði og hins vegar í íbúðarhúsnæði.
Voru allar stöðvar sendar af stað og liðinu skipt á staðina tvo. Greiðlega gekk að slökkva eldinn í íbúðarhúsnæðinu en aðallega var um að ræða reyk í iðnaðarhúsnæðinu.