Vegir eru að mestu auðir um allt land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þó er hálka á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði en hálkublettir á Öxi og Mjóafjarðarheiði.
Bent er á að reiknað sé með krapasnjó í lágsveitum Suðurlands, suðvestanlands um Mýrar og vestur á Snæfellsnes í nótt. Einkum á milli klukkan tvö og fjögur.