Einn var fluttur á slysadeild eftir árekstur á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar um hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er þó talið að meiðsl viðkomandi séu minni háttar.
Slökkviliðsmenn ásamt lögreglu voru kallaðir á vettvanginn, en hreinsa þurfti upp olíu og flytja bílana í burtu.