Sendiferðabíll ók á afturhlið bílskúrs í Háaleitishverfi í Reykjavík í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fékk bílstjórinn flogakast og missti stjórn á bifreiðinni.
Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrakbíl á bráðamóttöku Landspítalans en ekki er vitað um líðan hans að svo stöddu.