„Langflestir í útskriftarárganginum ætla að fara að vinna einhvers staðar annars staðar,“ segir Sunneva Björk Gunnarsdóttir, formaður Curator, félags hjúkrunarnema við Háskóla Íslands.
Almennt er óánægja meðal útskriftarárgangs hjúkrunarfræðinema með launakjör og álag á Landspítalanum og því hafa flestir leitað annað eftir vinnu, til dæmis á hjúkrunarheimilum eða í heimahjúkrun, og nokkur dæmi eru um að fólk sækist eftir störfum sem flugfreyjur eða flugþjónar.
Að sögn Sunnevu sækja langflestir um störf á Íslandi, þó að eitthvað sé um að fólk leiti út fyrir landsteinana, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.