Ný götunöfn: Sunnusmári og Sunnutorg

Frá verðlaunaafhendingunni í Smáralind. Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, Ármann Kr. …
Frá verðlaunaafhendingunni í Smáralind. Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, Alexander Þorsteinsson, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Hildar Einarsdóttur, Ágústa Hreinsdóttir, sigurvegari í nafnasamkeppni, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs, og Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins.

Sunnusmári og Silfursmári verða nöfn gatna í nýrri byggð, 201 Smári í Kópavogi. Torg við Smáralindina mun nefnast Sunnutorg. Tilkynnt var um nöfnin í gær og verðlaun afhent á sama tíma í nafnasamkeppni sem fram fór um götuheitin. Um er að ræða nýja 620 íbúða byggð sem mun rísa í Smáranum, sunnan Smáralindar. Almenningi gafst tækifæri á að taka þátt í leik um útfærslur íbúða og hverfis auk nafnaleiks í samstarfi við Kópavogsbæ um götunöfn og nafn á aðaltorginu í byggðinni.

Ágústa Hreinsdóttir sigraði í nafnasamkeppni en alls bárust tillögur frá um 400 manns. Bæjarstjórn Kópavogs valdi nöfn úr innsendum tillögum. Ágústa var með tillögu af öllum þremur nöfnunum, Sunnusmára, Silfursmára og Sunnutorgi, sem valin voru en nöfnin komu einnig fram hjá fleirum sem þátt tóku. Samhliða samkeppninni um nöfn á götum tóku tæplega 2.000 manns þátt í leik á síðunni www.201.is þar sem þátttakendum var gefinn kostur á að móta verkefnið með þróunaraðilum. Dregið var úr nöfnum þeirra sem tóku þátt og var það Hildur Einarsdóttir sem fékk verðlaunin. Báðir sigurvegararnir hlutu flugmiða frá Wow Air í verðlaun.

„Við erum afar ánægð með hversu góð þátttaka var í nafnasamkeppninni og leiknum,“ er haft eftir Ingva Jónassyni, framkvæmdastjóra Klasa, í fréttatilkynningu en Klasi sér um framkvæmd verkefnisins ásamt Regin fasteignafélagi og Smárabyggð ehf. „Spurt var út í ýmsa hluti er varðar bæði hverfið og síðan útfærslu bygginga og íbúða. Þar kom margt spennandi og áhugavert fram. Með þessari nálgun var almenningi gert kleift að hafa bein áhrif á það hvernig hverfið, húsin og íbúðirnar mótast. Upplýsingar verða notaðar við hönnun og nánari útfærslu verkefnisins.“ 

201 Smári er 620 íbúða byggð sem mun rísa í …
201 Smári er 620 íbúða byggð sem mun rísa í Smáranum, sunnan Smáralindar.

Ingvi segir að áhersla verði lögð á fjölbreytileika í stærðum íbúða og áhersla er á að skapa góðar aðstæður fyrir fjölskyldufólk. Íbúðirnar verða frá um 50 fermetrum að stærð, og áhersla á vel skipulagðar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir.

 Nýr kafli

„Það er afar ánægjulegt að sjá nýjan kafla hefjast í uppbyggingu Smáralindarsvæðisins,“ er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs, í fréttatilkynningu. „Þótt 201 Smári sé nýtt hverfi þá er það nú þegar mjög gróið og íbúarnir sem hingað munu flytja koma til með að njóta góðs að því. Það er stutt í alla þjónustu og hér eru nú þegar skólar, leikskólar og íþróttamannvirki til staðar sem og þjónusta við eldri borgara.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert