Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á föstudag í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í verslun Krónunnar á Granda í júní í fyrra. Að því er fram kemur í dómnum réðst maðurinn á brotaþola, sem hann segir hafa beitt unnustu sína kynferðisofbeldi.
Var honum enn fremur gert að greiða fórnarlambi sínu 400 þúsund krónur í skaðabætur með vöxtum, 200 þúsund krónur í málskostnað og um 670 þúsund krónur í málsvarnarlaun og annan sakarkostnað.
Að því er fram kemur í dómnum veittist maðurinn að öðrum manni og kýldi hann með krepptum hnefa í andlitið þannig að hann féll á gólfið. Í framhaldinu hafi hann kýlt manninn ítrekað þar sem hann lá á gólfinu, með þeim afleiðingum að hann hlaut mörg opin sár á höfði, tognun og ofreynslu á hálshrygg og brjósthrygg og nefbeinsbrot.
Kveðst maðurinn hafa verið með unnustu sinni við afgreiðslukassa inni í Krónunni þegar hann hafi séð brotaþola í versluninni. Unnusta hans hafi verið búin að kæra manninn fyrir nauðgun. Hann hafi sagt unnustu sinni að brotaþoli væri í versluninni, en hún hafi brugðist mjög illa við og hnigið niður. Eitthvað hafi brostið innra með honum og hann hafi því ráðist á manninn. Segist hann ekki hafa haft stjórn á sér og verið alveg brjálaður.
Þá segist hann hafa verið í miklu andlegu ójafnvægi við það að sjá brotaþola í versluninni þennan dag. Ætluð brot mannsins gagnvart unnustu hans hafi haft miklar afleiðingar í för með sér fyrir unnustu hans. Hann hafi blindast af reiði.
Brotaþoli segist hafa verið við ávaxtadeild verslunarinnar þegar hann hafi skyndilega fengið högg í hnakka. Við það hafi hann fallið í gólfið. Því næst hafi hann fengið nokkur högg í andlitið á meðan hann hafi verið í gólfinu. Fólk í versluninni hafi stigið inn í atburðarásina. Segir hann unnustu ákærða hafa ranglega kært sig fyrir nauðgun.
Atvikið átti sér stað 19. júní í fyrra en brotaþoli lagði fram kæru þremur dögum síðar. Meðal gagna málsins eru myndbandsupptökur úr versluninni sem sýna stóran hluta atburðarásarinnar.