„Við viljum fá skynjunina af stað hjá fólki og láta það finna að það er nálægt öllum þessu sterku náttúruöflum,“ segir Hulda Kristjánsdóttir, rekstrarstjóri hjá Lava, um eldfjalla- og jarðsögusýninguna sem opnaði nýverið á Hvolsvelli.
mbl.is kom við á sýningunni fyrir skömmu sem er að stórum hluta gagnvirk en það voru fyrirtækin Basalt Arkitektar og Gagarín sem sáu um framkvæmdina á henni. Höfundur er jarðfræðingurinn Ari Trausti Guðmundsson.
Auk þess að geta flett upp upplýsingum á stórum gagnvirkum veggjum, með myndum af helstu eldfjöllunum á Suðurlandi, er hægt að finna fyrir jarðskjálftum þar sem gólfið hristist undir manni og ganga í gegnum öskufall.
Þá er hægt að hlusta á Sunnlendinga segja frá reynslu sinni af jarðhræringum. Markmiðið er að gestir fá góða tilfinningu fyrir kraftinum í íslenskri náttúru og þeir sem mbl.is ræddi við eftir að hafa skoðað sýninguna voru sammála um að það tækist vel.