„Það er ótrúlegur gangur þessa dagana og liggur við að hægt sé að sjá mun frá degi til dags. Það má segja að verkefnið sé á lokametrunum.“
Þetta segir Snæbjörn Sigurðsson, verkefnastjóri Norðurþings, í Morgunblaðinu í dag og vísar í máli sínu til framkvæmda á Bakka við Húsavík við kísilmálmverksmiðju PCC Bakka Silicon hf.
Snæbjörn segir að á fimmta hundrað manns starfi nú á Bakka í uppbyggingunni. „Það er verið að reisa stálgrindarhús; það er verið að steypa undirstöður undir hús; það er verið að setja saman ofnana sjálfa sem verða í verksmiðjunni og það er verið að setja upp reykræstikerfið,“ segir Snæbjörn og bætir við að verið væri að vinna „á öllum vígstöðvum“.