Árekstur á Ólafsfjarðarvegi

Tveir bílar lentu saman á Ólafsfjarðarvegi.
Tveir bílar lentu saman á Ólafsfjarðarvegi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólafsfjarðarvegur er lokaður vegna bílslyss en vegurinn er lokaður við Syðri-Haga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Tvær bifreiðar lentu saman en önnur bifreiðin var með hjólhýsi í eftirdragi. Í tilkynningu lögreglunnar segir að ekki sé talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki en mikið brak sé úr ökutækjunum tveimur á veginum. Verður vegurinn því lokaður um tíma.

Uppfært 19.01:
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er búið að opna Ólafsfjarðarveg að fullu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert