Áfram verður hlýjast á landinu fyrir norðan og á Norðausturlandi í dag sem og inn til landsins. Víða verður léttskýjað en skýjað verður á Suðurlandi og skúrir á stöku stað síðdegis. Búist er við því að hitinn gæti farið í 10 til 25 stig á Norðausturlandi.
Íbúar og ferðamenn í Borgarfirði og á Snæfellsnesi geta einnig vel við unað en þar verður léttskýjað í dag og spáð er 19 stiga hita á Hvanneyri.
Vestfirðingar geta sömuleiðis sólað sig í dag en þegar líður á daginn verður heiðskírt og spáð er 16 stiga hita í Bolungarvík.
Suðaustan kaldi SV- og V-lands, annars hægari vindur. Víða léttskýjað, en skýjað á S-landi og stöku síðdegisskúrir NV-til á landinu. Hiti fer í 15 til 25 stig þegar best lætur, hlýjast á NA-landi. Svipað veður á morgun. Ákveðin austanátt og bjart veður á miðvikudag, en skýjað við SA- og A-ströndina. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.