Handleggsbrotnaði á trampólíni

mbl.is/Þórður

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um trampólínslys við Sjávargrund um sexleytið í kvöld, en þar hafði barn handleggsbrotnað sem lenti illa er það var að hoppa á trampólíninu.

Þá barst tilkynning um árekstur vespu og bíls við Vallarhjalla um hálfáttaleytið í kvöld. Tvær stúlkur sátu á vespunni og var farið með þær báðar í sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar. Ekki kom fram í dagbók lögreglu hvort meiðsl þeirra hefðu verið alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka