Tveir menn á appelsínugulum bíl reyndu að lokka þrjá drengi inn í bíl til sín í Grafarholtinu á laugardaginn. Frá þessu greindi áhyggjufullt foreldri inni á Facebook síðu sem kallast „Ég er íbúi í Grafarholti“.
Atvikið átti sér stað um hábjartan dag þegar drengirnir gengu yfir gangbraut við Kirkjustétt. Í færslunni segir að mennirnir hafi reynt að lokka drengina inn í bílinn með því að bjóða þeim nammi. Þegar þeir neituðu og hlupu í burtu hafi bíllinn ekið á eftir þeim og var þeim talsvert brugðið.
Valgarður Valgarðsson aðalvarðstjóri segir að lögreglunni hafi ekki verið tilkynnt um atvikið en verið sé að skoða málið.