Tveir 16 ára drengir voru fluttir á bráðadeildina í Fossvogi eftir fjórhjólaslys á Selfoss í gærkvöldi. Annar þeirra er talinn alvarlega slasaður en ekki er vitað nánar um líðan þeirra, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi.
Slysið varð við gatnamót Hagalækjar og Laxalækjar á Selfossi. Ekki er vitað um tildrög þess.