Skátamótið World Scout Moot 2017 er hafið en mótið var sett við hátíðlega athöfn sem hófst í Laugardalshöll klukkan tíu í morgun. Um 5.200 manns frá um 100 löndum taka þátt í mótinu með einum eða öðrum hætti, þar af 4.700 þátttakendur á aldrinum 18-25 auk fjölda sjálfboðaliða 26 ára og eldri.
Um er að ræða eitt stærsta einstaka verkefni skátahreyfingarinnar á Íslandi í 100 ára sögu hennar. Mótið fer fram á fjögurra ára fresti og var fyrst haldið árið 1931 og er mótið í ár það fjölmennasta frá upphafi en þetta er í fyrsta sinn sem mótið fer fram á Íslandi.
Stærsti hópurinn er frá Bretlandi en þaðan koma um 650 þátttakendur. Þá taka um 450 Ástralar, 360 Svisslendingar og 300 Brasilíumenn þátt í mótinu en færri frá öðrum löndum. Um 100 íslenskir skátar eru skráðir til leiks sem þátttakendur en yfir 300 íslenskir skátar hafa þó sinnt undirbúningi og skipulagningu mótsins frá árinu 2013.
Nú að lokinni setningarathöfn dreifist hópurinn milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Selfoss, Hveragerðis, Akraness, Akureyrar, Heimalands, Hólaskjóls, Skaftafells og Þingvalla. Þá kemur hópurinn aftur allur saman á Úlfljótsvatni á laugardag en mótinu lýkur formlega 2. ágúst.