Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um fimmleytið í dag til að sækja veikan sjómann á fiskiskipi við strendur Norðurlands.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni fór þyrlan í loftið um fimmleytið og lenti þremur klukkutímum síðar, um áttaleytið, við Borgarspítala.
Ekki er vitað um núverandi ástand sjómannsins.