Björgunarsveitir Landsbjargar eru að aðstoða göngufólk í vanda á þremur stöðum nú í kvöld, ásamt því að hópar standa vaktina á þremur stöðum á hálendinu og í Skaftafelli.
Rétt fyrir átta var tilkynnt um ökklabrotinn göngumann á gönguleiðinni á milli Arnarstapa og Hellna á Snæfellsnesi og er björgunarsveit frá Snæfellsnesi að koma manninum að sjúkrabíl.
Upp úr átta voru björgunarsveitir frá Egilsstöðum og Seyðisfirði kallaðar úr vegna konu sem er villt í þoku í Seyðisfirði. Á sama tíma er björgunarsveit frá Hvolsvelli að fylgja eftir ábendingu um örmagna göngumann á Fimmvörðuhálsi.
Uppfært: 23:40 Öklabrotna göngumanninum við Arnarstapa var komið í sjúkrabíl upp úr klukkan níu og eftirgrennslan á Fimmvörðuhálsi hefur verið hætt í samráði við lögreglu.
Þá hafa björgunarsveitir einnig fundið konuna sem villtist í þoku á Seyðisfirði og er hún nú á leið til byggða ásamt björgunarsveitarfólki.