Einfalda skráningu íslensks ríkisborgararéttar

Dómsmálaráðuneytið vinnur að drögum að breytingum á lögum um íslenskan …
Dómsmálaráðuneytið vinnur að drögum að breytingum á lögum um íslenskan ríkisborgararétt og barnalögum. Áætlunin er að auðvelda umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt og draga úr ríkisfangsleysi. mbl.is/Golli

Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út drög að breytingum á lögum um íslenskan ríkisborgararétt og barnalögum.  Ætlun frumvarpsins er að draga úr ríkisfangsleysi með því að einfalda möguleika á skráningu íslensks ríkisborgararéttar til barna sem fæðast hér á landi og ungs fólks sem búið hefur hér á landi.

Tilgangur breytinganna er að styrkja lagaaðstoð vegna undirbúnings fullgildingar tveggja samninga Sameinuðu þjóðanna um ríkisfangsleysi. Annars vegar samnings um réttarstöðu ríkisfangslausra einstaklinga frá árinu 1954 og hins vegar samnings um að draga úr ríkisfangsleysi frá 1961. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Við vinnslu á frumvarpinu hefur Dómsmálaráðuneytið haft faglegt samráð við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Þjóðskrá Íslands, Útlendingastofnun og sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

Á síðasta löggjafarþingi var sambærilegt frumvarp um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt lagt fram en meðferð þess lauk ekki á Alþingi og hafa litlar breytingar verið gerðar þar á síðan frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert