Fyrsti vinningur upp á tæpa tvo milljarða króna gekk ekki út í Víkinga-lottói kvöldsins og sama á við um annan vinning upp á tæpar eitt hundrað milljónir króna og þriðja vinning upp á rúmar 3,6 milljónir. Jókervinningurinn upp á tvær milljónir fór ekki heldur neitt.
Hins vegar fá sex lottóspilarar 100 þúsund krónur hver.