Fjarðarheiði milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar er lokuð vegna umferðaróhapps sem varð efst á heiðinni. Mikil þoka er á svæðinu en lítil eða engin slys urðu á fólki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.
Þar kemur enn fremur fram að einhvern tíma muni taka að koma bifreiðum í burtu en talsverð umferð hafi verið vegna Norrænu sem nú er á Seyðisfirði.