Harður árekstur varð á gatnamótum Grundagerðis og Stóragerðis á Akureyri um klukkan ellefu í morgun.
Einn var í hvorum bíl og voru þeir báðir fluttir á slysadeild sjúkrahússins á Akureyri til aðhlynningar. Að sögn lögreglu eru meiðsl þeirra þó ekki talin alvarleg. Báðir bílarnir voru óökuhæfir eftir áreksturinn og voru þeir fluttir af vettvangi með kranabíl.