Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður vill ekkert tjá sig um ráðningu borgarlögmanns. Ebba Schram hæstaréttarlögmaður var ráðin borgarlögmaður í síðustu viku en hún og Ástráður sóttu tvö ein um stöðuna.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði vinnubrögð Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og annarra fulltrúa meirihluta borgarstjórnar við ráðningu borgarlögmanns vítaverð og skólabókardæmi um hvernig ekki á að standa að ráðningu í opinbert embætti.
Kjartan benti einnig á að forseti borgarstjórnar, Líf Magneudóttir, hefði ekki stutt tillögu borgarstjóra um ráðningu borgarlögmanns.
Ástráður stendur í málaferlum við íslenska ríkið út af annarri ráðningu þegar hann var ekki skipaður sem dómari við Landsrétt. Aðalmeðferð í viðurkenningarkröfu Ástráðs gegn ríkinu fer fram í fyrramálið í Héraðsdómi Reykjavíkur.