Áframhaldandi strekkings norðanátt verður á landinu í dag með talsverðu vatnsveðri fyrir norðan, en víða verður léttskýjað syðra.
Í hugleiðingum vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að veðrið muni svo fara skánandi á morgun. Norðanáttin gangi þá smám saman niður og stytti upp víða fyrir norðan.
Þokkalegur hiti verður á landinu sunnanverðu og hiti víða 12 til 18 stig að deginum, en svalt fyrir norðan.
Vaxandi hæðarsvæði verður síðan yfir landinu á sunnudag og útlit fyrir að hæðin verði viðvarandi framan af næstu viku með tilheyrandi veðurblíðu í flestum landshlutum.