Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um reyk á Laugavegi nú á sjötta tímanum í dag. Þegar slökkvibílar voru lagðir af stað kom í ljós að um minniháttar eld var að ræða og var öllum bílum utan eins snúið til baka á slökkvistöðvar.
Slökkviliðið hefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.