Slökkviliðið var kallað tvisvar út um klukkan sjö í kvöld, annars vegar vegna mótorhjólaslyss í Boröldu og hins vegar vegna reiðhjólaslyss í Lækjarbotnum ekki langt frá.
Bæði slysin áttu sér stað um klukkan sjö í kvöld og voru einstaklingarnir fluttir á sjúkrahús en ekki er vitað hvort um alvarleg slys er að ræða. Lögregla er á staðnum og rannsakar málin.