Vilja tala við þann sem var ógnað

Lögreglubifreið.
Lögreglubifreið. mbl.is/Þórður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ná tali af manninum sem var ógnað með skammbyssu fyrir utan Ölhúsið við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði á föstudaginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Embættið vinnur að rannsókninni en fram kemur að sá sem varð fyrir ógnuninni hafi ekið hvítum smábíl. „Sá maður, eða þeir sem vita hver viðkomandi er eru beðnir um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði,“ segir í tilkynningunni. Netfangið er jgs@lrh.is en einnig má senda lögreglunni einkaskilaboð á Facebook eða hringja í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert