Frumvarp um breytingar á sveitastjórnarlögum er varða fjölda borgarfulltrúa í Reykjavík var til umræðu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Frumvarpið, sem var lagt fyrir alþingi á síðasta löggjafarþingi, er enn í óbreyttri mynd, en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess þá m.a. vegna mikillar andstöðu Vinstri grænna og Pírata.
Jón Gunnarsson, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, tilkynnti þá að hann hygðist leggja frumvarpið fram að nýju á haustþingi.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir fjölgun fulltrúa í sveitarstjórn þar sem íbúar eru 100 þúsund eða fleiri.
Áður hefur þó komið fram að ekki verður skylt að fjölga fulltrúum í borgarstjórn Reykjavíkur úr 15 í að lágmarki 23 við kosningarnar á næsta ári, verði frumvarpið að lögum. Greindi ráðherra frá því í vor að hann telji eðlilegt að ákvörðunin sé í höndum sveitarfélaganna sjálfra.