Máli þar sem ferðamenn voru kærðir fyrir dráp á lambi í júlí er lokið. Hinum seku var gert að greiða 120.000 krónur í sekt fyrir brot á 257. grein almennra hegningarlaga. Lögreglustjórinn á Austurlandi telur að með þessu hafi málinu lokið endanlega.
Matvælastofnun kærði mennina fyrir brot á lögum um velferð dýra. Lögreglunni á Austurlandi barst bréf frá MAST þess efnis 21. júlí en atvikið átti sér stað 2. júlí.
Ábúendur á Núpi í Berufirði gómuðu þá níu fullorðna erlenda ferðamenn, þar sem þeir hlupu lambið uppi.
Áður en mennirnir náðu lambinu eltu þeir það um kílómetra leið. Að sögn Hreins Péturssonar, bónda á Ósi, var lambið orðið þreytt, ruglað og örvæntingarfullt og líklega búið að gefast upp. Mennirnir króuðu lambið af í fjörunni og barst þá leikurinn út í sjó. Þar hafði það enga undankomuleið og var handsamað. Lambið, sem var í eigu Hreins, var því næst skorið á háls.
„Þar sem málinu var endanlega lokið með greiðslu sektar, þegar kæra Matvælastofnunar barst, var því hafnað að taka málið til frekari rannsóknar,“ segir í svari Helga Jenssonar, lögreglufulltrúa á Austurlandi, við fyrirspurn mbl.is.
Við það er bætt að lögreglan á Austurlandi leggur almennt mikla áherslu á það að reyna að klára mál er varða erlenda aðila á staðnum og áður en kærðu fara úr landi. „Enda mjög erfitt og kostnaðarsamt að rannsaka og saksækja mál eftir að kærðir aðilar eru farnir til síns heima.“
Sektargreiðsla mannanna var einungis fyrir brot á eignarspjöllum, ekki fyrir dýraníð, en samkvæmt 6. mgr. 45. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 sæta brot gegn þeim lögum aðeins rannsókn lögreglu að undangenginni kæru Matvælastofnunar.