Um 1340 nýnemar hófu nám við Háskólann Í Reykjavík í haust, sem er um 7% fjölgun frá síðasta skólaári. 908 nemar hefja grunnnám, 283 meistaranám og 152 frumgreinanám. Að auki stunda um 140 erlendir skiptinemar nám við HR á þessari önn. Samtals hófu því um 1.500 manns nám við HR. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Mesta fjölgun nýnema er í lagadeild þar sem nýnemum í grunnnámi og meistaranámi í lögfræði fjölgar um þriðjung á milli ára. Flestir nýnemar hófu nám í tækni- og verkfræðideild og þar er fjölgun nýnema sérstaklega áberandi í grunnnámi í heilbrigðisverkfræði og í íþróttafræði.
Um 40 erlendir meistaranemar stunda nám við HR á þessu skólaári, flestir í Íslenska orkuháskólanum. Alls stunda um 3.600 nemendur nám við HR á yfirstandandi skólaári, í viðskiptadeild, lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og frumgreinadeild. Þetta kemur einnig fram í tilkynningu.