Óskað var eftir aðstoð lögreglu í fjölbýlishús í austurborginni skömmu fyrir klukkan tvö í nótt en var var stúlka í mjög annarlegu ástandi í stigaganginum. Stúlkan var algjörlega stjórnlaus, argaði og lamdi á hurðir íbúa í stigaganginum.
Stúlkan var handtekin og flutt á lögreglustöðina Hverfisgötu þar sem hún er vistuð í fangageymslu sökum ástands.
Á fjórða tímanum í nótt stöðvaði lögreglan för ökumanns á höfuðborgarsvæðinu sem var undir áhrifum fíkniefna.