BÍ fordæmir lögbann á Stundina

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands

„Við mótmælum og fordæmum þessar aðgerðir og teljum að sýslumaður eigi ekkert erindi inn á ritstjórnarskrifstofur íslenskra fjölmiðla. Þessar aðgerðir eru aðför að tjáningarfrelsi fjölmiðla og rétti blaðamanna að afla sér gagna og vinna úr þeim. Bankaleynd þjónar engum nema þeim sem hafa eitthvað að fela.“ Þetta segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ), um lögbann á fréttaflutning Stundarinnar, byggða á gögnum innan úr Glitni.

Á heimsíðu Blaðamannafélagsins segir að afar fátítt sé að lögbann sé sett á gögn sem fjölmiðlar á Íslandi byggi fréttir sínar á, en úrskurður sýslumanns fer nú fyrir dómstóla.

Þar er bent á að sambærilegt mál hafi meðal annars komið upp árið 2009 þegar lögbanns var krafist á lánabók Kaupþings. Það sama gerðist fyrir tólf árum þegar sett var lögbann á tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hafði þá undir höndum. Því var einnig mótmælt af hálfu BÍ.

Það mál gekk alla leið til Hæstaréttar sem úrskurðaði að birting Fréttablaðsins á tilteknu innihaldi póstanna væri heimil þar sem þeir vörðuðu þjóðfélagslega mikilvægt mál og ættu erindi til almennings. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert