Ökumaður fólksbifreiðar og farþegi í henni sluppu með skrekkinn þegar bílnum var ekið inn í framanverða hliðina á rútu á Reykjanesbraut nú í vikunni.
Hugðist ökumaðurinn aka fram úr rútunni, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum, en ók þess í stað á hana. Við það snérist bíllinn í hálfhring og hafnaði því næst á vegriði. Sluppu ökumaðurinn og farþeginn ómeiddir frá þessu, en báðir játuðu neyslu fíkniefna.
Þeir sex farþegar sem voru í rútunni, auk ökumanns, og sluppu allir án meiðsla.
Þá voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og einn ók sviptur ökuréttindum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Var þetta í annað sinn sem lögregla hafði afskipti af hinum síðastnefnda vegna aksturs án réttinda.