Óhapp varð nú síðdegis þegar eldri kona missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún keyrði inn í verslun Hagkaupa á Seltjarnarnesi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu rann konan til á bensíngjöfinni með þessum afleiðingum.
Engin slys urðu á fólki. Bíllinn var fjarlægður í kranabíl og einhverjar skemmdir urðu á búðinni.