Þjóðvegi 1 um Öræfasveit hefur verið lokað vegna veðurs en lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Hvasst er víða á landinu en áður hafði verið greint frá lokun vega á Vestfjörðum.
Vegfarendum er bent á að fylgjast með upplýsingum um veður og færð á vef Vegagerðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi á vefsíðu Vegagerðarinnar er heldur tekið að hvessa að nýju af norðaustri.
Við það eykst skafrenningur víða um landið norðan- og austanvert og skyggni versnar. Hins vegar er minni éljagangur framan af kvöldi, en eykst síðan aftur til morguns. Hviður allt að 35 m/s á sunnanverðu Snæfellsnesi og fram yfir miðnætti á Kjalarnesi. Þá má frá Lómagnúpi og austur undir Höfn í kvöld og fram eftir nóttu gera ráð fyrir staðbundnum sviptivindum allt að 40-45 m/s í hviðum og eins hálku þar í hita nærri frostmarki.