Fagna því að konur rjúfi þögnina

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ung vinstri græn, Uppreisn, Samband ungra framsóknarmanna, Ungir jafnaðarmenn, Ungir sjálfstæðismenn og Ungir píratar fagna því að konur séu að stíga fram og rjúfa þögnina um kynferðislega áreitni, ofbeldi og valdbeitingu innan stjórnmála.

Þetta kemur fram í ályktun sem ungliðahreyfingarnar sendu frá sér í kvöld. Þar segir að slík hegðun eigi ekki að líðast, hvorki innan stjórnmála né nokkurs staðar annars staðar í samfélaginu.

„Þegar slík misbeiting valds fær að viðgangast ýtir sú háttsemi undir að stjórnmálaumhverfið sé konum fjandsamlegt og getur leitt til þess að konur fái færri tækifæri og endist skemur í stjórnmálum. Því er gríðarlega mikilvægt að opin umræða eigi sér stað um misbeitingu sem þessa og að skýrir verkferlar séu til staðar innan stjórnmálahreyfinga til þess að taka á slíku,“ segir í ályktuninni.

Með opinni umræðu er líklegra að þeim verða fyrir áreiti gert auðveldara fyrir að tilkynna áreitið og líklegra er að gerendur verði látnir sæta afleiðingum gjörða sinna.

Það sé gríðarlega mikilvægt fyrir konur í stjórnmálum, bæði nú og þegar til framtíðar er litið, að taka á þessu. Er það sérstaklega mikilvægt til að konur hafi jöfn tækifæri til stjórnmálaþátttöku og karlar.

Unglingahreyfingarnar munu beita sér að fullum krafti fyrir breytingum innan sinna flokka og fylgja því eftir að skýrir verkferlar séu settir fram til þess að taka á kynferðislegri áreitni og valdbeitingu innan flokkanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert