Heppinn lottóspilari er rúmum 1,2 milljörðum króna ríkari eftir útdráttinn í Eurojackpot í kvöld en hann situr einn að fyrsta vinningi kvöldsins. Vinningsmiðinn var keyptur í Danmörku.
Fleiri vinningar gengu út en tveir skipta með sér öðrum vinningi kvöldsins og fær hvor í sinn hlut sem nemur tæplega 152 milljónum króna.
Fimm skipta með sér þriðja vinningi en þeir hljóta 10,6 milljónir hver.
Tölur kvöldsins eru 11, 16, 18, 22, 43. Stjörnutölurnar eru 7 og 8.