Tilkynningum um innbrot fjölgaði mikið í nóvember miðað við meðalfjölda undanfarinna mánaða og hefur innbrotum fjölgað töluvert síðustu mánuði. Alls bárust 102 tilkynningar um innbrot í nóvember.
Þetta kemur fram í afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Hlutfallslega fjölgaði innbrotum í fyrirtæki, stofnanir og verslanir mest miðað við síðustu mánuðina á undan. Flestar tilkynningar bárust aftur á móti um innbrot á heimili eða einkalóð, eða alls 45.
Tilkynningum um ofbeldisbrot fjölgaði einnig töluvert í nóvember miðað við meðalfjölda síðustu mánuði á undan. Það sem af er ári eru tilkynningarnar orðnar um 15 prósent fleiri en þær voru að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan.
Alls bárust 734 tilkynningar um hegningarlagabrot í nóvember og fækkaði tilkynningum nokkuð á milli ára.
Hlutfallslega fækkaði nytjastuldum mest á milli mánaða, eða um rúmlega 50 prósent.