Seinkun vegna aðskotahlutar

Flugvél WOW air.
Flugvél WOW air.

Aðskotahlutur fór inn í hreyfil á flugvél WOW air er hún lenti í borginni Tel Aviv í Ísrael í morgun sem varð til þess að margra klukkustunda seinkun varð á næsta flugi þaðan til Íslands.

Að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa WOW air, var um minni háttar bilun að ræða. Búið er að gera við vélina og er hún aftur farin á loft.

Ekki er vitað hver aðskotahluturinn var sem fór inn í hreyfilinn.

Upplýsingar mbl.is herma að flugvélinni hafi seinkað um sex klukkustundir en Svanhvít gat ekki staðfest það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert