Íslenska landsliðið í ungum sýnendum hunda varð um helgina Norðurlandameistari í liðakeppni og Berglind Gunnarsdóttir varð Norðurlandameistari í einstaklingskeppni ungra sýnenda.
Nordic Winner-sýningin var haldin í Helsinki í Finnlandi. Ísland hefur tekið þátt í keppninni á hverju ári síðan 2006 og ávallt vegnað vel en árangurinn um helgina er sá besti hingað til.
Í flokki ungra sýnenda hunda er hæfni sýnanda til að sýna hund dæmd ásamt sambandi hunds og sýnanda og þekkingu sýnandans á tegundinni, að sögn Auðar Sifjar Sigurgeirsdóttur sem er þjálfari stúlknanna. Hundurinn sjálfur er ekki dæmdur, að því er fram kemur í umfjöllun um mótið í Morgunblaðinu í dag.