Fyrsti vinningur í Eurojackpot gekk ekki út í kvöld en rúmlega 2,6 milljarðar króna voru í pottinum. Annar vinningur gekk heldur ekki út að þessu sinni, en hann hljóðaði upp á tæpar 170 milljónir króna.
Sjö heppnir spilarar fengu hins vegar þriðja vinning, eða rúmar 8,5 milljónir króna, hver. Þeir miðar voru seldir í Póllandi, Slóvakíu, Noregi og Þýskalandi.
Eurojackpot-tölur kvöldsins: 1-7-12-16-18
Stjörnutölur kvöldsins: 1 og 4
Enginn var með 5 réttar jókertölur í réttri röð, en tveir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá þeir 100.000 kr. hvor í sinn hlut.
Jókertölur kvöldsins: 7-0-1-2-6