Enginn fékk milljarðana 2,6

Fyrsti vinn­ing­ur í Eurojackpot gekk ekki út í kvöld en rúm­lega 2,6 millj­arðar króna voru í pott­in­um. Annar vinningur gekk heldur ekki út að þessu sinni, en hann hljóðaði upp á tæpar 170 milljónir króna.

Sjö heppn­ir spil­ar­ar fengu hins vegar þriðja vinn­ing, eða rúmar 8,5 millj­ónir króna, hver. Þeir miðar voru seldir í Póllandi, Slóvakíu, Noregi og Þýskalandi.

Eurojackpot-töl­ur kvölds­ins: 1-7-12-16-18

Stjörnu­töl­ur kvölds­ins: 1 og 4

Eng­inn var með 5 rétt­ar jóker­töl­ur í réttri röð, en tveir voru með fjór­ar rétt­ar tölur í réttri röð og fá þeir 100.000 kr. hvor í sinn hlut.

Jóker­töl­ur kvölds­ins: 7-0-1-2-6

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert