Rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi var karlmaður handtekinn í Grafarvogi grunaður um húsbrot, heimilisofbeldi, líkamsárás, eignaspjöll, akstur undir áhrifum fíkniefna og aka sviptur ökuréttindum. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins.
Þá var annar karlmaður handtekinn um klukkan fjögur í nótt í Austurstræti grunaður um líkamsárás. Maðurinn var einnig vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Karlmaður var einnig handtekinn á bar við Smiðjuveg í Kópavogi klukkan tvö í nótt grunaður um eignaspjöll. Maðurinn var ölvaður og var vistaður í fangageymslu.